Félagsmenn Eflingar á almennum vinnumarkaði samþykktu verkfallsboðun rétt í þessu en yfirgnæfandi meirihluti samþykkti boðaðar verkfallsaðgerðir í póstatkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðslunni lauk kl. 12.00 á hádegi í dag og var hún í tvennu lagi þar sem annars vegar greiddu atkvæði þeir félagsmenn sem falla undir almenna kjarasamninginn og hins vegar þeir sem falla undir kjarasamning vegna vinnu starfsfólks í veitinga- og gistihúsum.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu frá félagsmönnum sem falla undir almennan kjarasamning voru á þann veg að 94% svöruðu játandi en aðeins 5,7% svöruðu neitandi. Sjö seðlar voru auðir og einn ógildur. Á kjörskrá voru 9.063 og af þeim tóku 2.662 þátt í kosningunni.

Niðurstöður atkvæðagreiðslu frá starfsfólki veitinga- og gistihúsa voru á þann veg að 91,1% svöruðu játandi en 8,6% neitandi. Á kjörskrá voru 5526 og af þeim tóku 814 þátt í kosningunni þá voru þrír seðlar auðir.