Kjarasamningar VM við SA, sem undirritaðir voru í desember, voru felldir í allsherjaratkvæðagreiðslu. Um var að ræða kjarasamninga VM vegna starfa félagsmanna á almennum vinnumarkaði í landi, þ.e. málmiðnaðarmanna, netagerðarmanna og vélstjóra, auk þeirra sem starfa á samningum félagsins við orkufyrirtækin.

Kosið var sameiginlega um samningana og lauk atkvæðagreiðslu kl. 24:00 þriðjudaginn 21. janúar.
Á kjörskrá voru 1751 en 364 tóku þátt í kosningunni, eða 20,8%.
Já sögðu 162, eða 44,5% greiddra atkvæða.
Nei sögðu 196, eða 53,8% greiddra atkvæða og 6 sátu hjá.

Á vef Skessuhorns kemur fram að félagar í Verkalýðsfélagi Akraness felldu einnig samninginn og það gerðu einnig félagar í Rafiðnaðarsambandinu, samkvæmt frétt á vef mbl.is .