SPRON og VÍS hafa komist að samkomulagi um niðurfellingu máls sem fyrrnefnda félagið höfðaði gegn því síðara þar sem krafist var riftunar á endurgreiðslu SPRON þann 31. október 2008 á 2 milljarða króna peningamarkaðsláni sem VÍS veitti sjóðnum í september 2008. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Eftir höfðun dómsmálsins ákvað Klakki ehf. fyrrum eigandi VÍS að halda félaginu skaðlausu af tjóni vegna þess. Í því skyni skuldbatt Klakki sig til að auka eigið fé VÍS um allt að 3,5 milljarða króna í því skyni að niðurstaða dómsmálsins hefði ekki áhrif á virði hlutabréfa félagsins.

Til tryggingar greiðslu fyrrgreindrar áskriftarskuldbindingar lagði Klakki fram ábyrgðaryfirlýsingu útgefna af Landsbankanum sem samsvarar 3,5 ma. kr. VÍS átti að geta krafið Landsbankann um greiðslu á grundvelli ábyrgðarinnar ef Klakki stæði ekki við skuldbindingar sínar um kaup á nýju hlutafé.

Með samkomulaginu sem nú hefur verið gert fallast samningsaðilar á að þeir eiga engar frekari kröfur á hendur hvor öðrum hverju nafni sem þær kunna að nefnast. Enginn kostnaður fellur á VÍS vegna samkomulagsins fyrir utan eigin málskostnað.

Af því tilefni hefur stjórn VÍS samþykkt að leysa Klakka ehf. undan áskriftarloforði sínu og bankaábyrgð í tengslum við skaðleysi VÍS af SPRON málinu enda ljóst að engin þörf er fyrir skaðleysið lengur.