Þrotabú Roku höfðaði mál á hendur Nýherja um miðjan janúar 2011 til riftunar á kaupsamningum um ráðstöfun tiltekinna eigna samhliða því að Nýherji hf. tók yfir rekstur félaganna Skyggnis ehf., TMS Origo ehf., EMR ehf., Vigor ehf., Viðju ehf., TM Software ITP ehf. og Theriak Medication Management ehf., úr höndum dótturfélags síns, Roku ehf. (áður TM Software ehf.).

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Nýherja að fyrirtækið hafi frá upphafi hafnað kröfum þrotabúsins og haldið uppi vörnum gegn þeim. Nýherji hf. átti umtalsverðar kröfur á hendur Roku ehf. sem félagið lýsti við gjaldþrotaskiptin. Jafnframt hefur félagið lagt í varasjóð til að mæta hugsanlegu fjárhagstjóni vegna dómsmálanna.

Á undanförnum mánuðum hafa stjórnendur Nýherja átt í viðræðum við þrotabú Roku ehf. og kröfuhafa þess um sátt í fyrrnefndum dómsmálum. Úr varð að fyrir skemmstu ákvað stjórn Nýherja að bjóða fram fjármögnun á nauðasamningi Roku ehf. við kröfuhafa sína sem fæli í sér greiðslu á tæpum 37% af höfuðstól samningskrafna. Frumvarp að nauðasamningi hefur hlotið samþykki kröfuhafa og var staðfest af Héraðsdómi Reykjaness þann 21. október sl. Í gær, þann 4. nóvember voru öll ofangreind riftunarmál þrotabús Roku ehf. á hendur Nýherja hf. felld niður.

„Á undanförnum misserum höfum við unnið eftir áætlun að minnka óvissu og lágmarka sveiflur í rekstri félagsins. Samkomulag við kröfuhafa Roku ehf. og niðurfellingu á dómsmálum á hendur Nýherja hf.er mikilvægt skref í þeirri vegferð. Áfram verður unnið í að bæta afkomu og styrkja eiginfjárstöðu og horfum við þar m.a til skipulags og uppbyggingar samstæðunnar,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja.

Nýherji segir staðfestingu nauðasamnings Roku ehf. og niðurfellingu dómsmála á hendur félaginu muna hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag Nýherja hf. en eyði þeirri fjárhagslegri áhættu sem möguleg neikvæð útkoma dómsmálanna hefði getað haft á félagið.