Einkahlutafélögin Sögn og Langbrók Film högnuðust um 243 milljónir árið 2014.
Langbrók Film er að fullu í eigu Baltasars Kormáks Samper kvikmyndaframleiðanda og leikstjóra. Sögn er í eigu Langbrókar Film og Baltasars persónulega.
Sögn ehf hagnaðist um 128 milljón króna í fyrrra en hagnaður nam104 milljónum árið 2013.
Hagnaður Langbrókar var 114 milljónum króna í fyrra. Félagið hagnaðist um tæpar 18 milljónir árið 2013.
Sjónvarpsserían Ófærð, sem sýnd er í Ríkissjónvarpinu, er framleidd af RVK stúdío, sem er dótturfélag Sagnar ehf. Meðframleiðslufyrirtæki eru Ríkisútvarpið. ZDF, France Télévisions, BBC og DR.