Fyrirtæki í eigu Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group,  hafa flaggað kaupum í FL Group og eru nú komin með yfir 20% í félaginu.

Samkvæmt tilkynningu átti Oddaflug B.V. 19,77% hlut í FL Group hf. fyrir kaupin og Elliðahamar ehf. 0,01% hlut. Oddaflug B.V. er í eigu Eignarhaldsfélagsins Oddaflug ehf. sem er í eigu Hannesar Smárasonar forstjóra FL Group hf. Elliðahamar ehf. er í eigu Gunnars Sturlusonar stjórnarmanns Eignarhaldsfélagsins Oddaflug ehf. og
Oddaflugs B.V. Eftir kaupin eiga félögin í heild 1,650,808,425 hluti í FL Group eða 20,78% eignarhlut. Gengið í viðskiptunum var  26,146.

Fjöldi hluta í eigu fjárhagslega tengdra aðila eftir viðskiptin eru 1.650.808.425.