Ég hef ekki verið að líta neitt sérstaklega á þessar tölur enda erum við að byrja. Það þarf ekki að vera hagnaður frá fyrsta degi,“ segir Jóns Stephenson von Tetzchner um afkomu þriggja einkahlutafélaga sem hann á hér á landi. Félögin heita Dvorzak Ísland ehf., Vivaldi Ísland ehf. og Vivaldi Technologies. Tvö fyrrnefndu félögin eru rekstrarfélög sem halda utan um fasteignir og hluti í félögum. Vivaldi Technologies heldur hins vegar utan um þróun á samfélagsmiðlinum Vivaldi.net. Eignasafn félaga Jóns er dreift. Þar á meðal er íbúð við Básbryggju við Gullinbrú í Reykjavík, hús við Vesturgötu 17 í Reykjavík og misstórir hlutir í fyrirtækjum á borð við Oz, mjólkurvinnsluna Örnu, netmiðilinn Spyr og Hringdu. Þá á eitt félaga Jóns 9,9% hlut í netfyrirtækinu Dohop. Athygli vekur að Jón metur hlutinn á 50 milljónir króna sem jafngildir því að verðmæti Dohop sé um hálfur milljarður íslenskra króna. Jón á auk þess nýsköpunarsetur á Eiðistorgi og í Boston í Bandaríkjunum.
Jón hefur flutt vel á fjórða milljarð króna hingað til lands í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands til að fjárfesta hér á landi.
Samanlagt virði eigna fyrstu tveggja félaganna nemur tæpum 590 milljónum íslenskra króna. Samanlagt tap félaganna þriggja nam á síðasta ári 73,6 milljónum króna, samkvæmt nýbirtum ársreikningum.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .