Eimskip hefur nú tryggt fjármögnun að 80% á smíði tveggja 2.150 gámaeininga skipum sem samið var um við China Shipbuilding Trading Company Limited og Guangzhou Wenchong Shipyard Co. Ltd. þann 25. janúar síðastliðinn.

Verð hvors skip fyrir sig nemur 32 milljónum Bandaríkjadala, en gert er ráð fyrir því að skipin verði afhent árið 2019. Kostar því hvert skip um 3,4 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi.

Greiða 60% við afhendingu

Verður 40% af samningsverðinu greitt á smíðatíma skipsins en restin við afhendingu skipanna, en samningurinn var gerður með fyrirvara um fjármögnun sem nú hefur verið aflétt. Lánveitandi Eimskip er þýski bankinn KfW IPEX-Bank GmbH., en lánið er í evrum til 15 ára að því er fram kemur í fréttatilkynningu Eimskip.

„Það er mjög gott að finna fyrir jákvæðni og trausti erlendra lánastofnana gagnvart Eimskip þar sem lánamarkaður fyrir skipafjármögnun hefur verið erfiður undanfarin misseri. Um er að ræða fjármögun til langs tíma á mjög hagstæðum kjörum,“ segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip.

„Einnig er ánægjulegt að með þessu erum við að stíga mikilvægt skref í endurnýjun á skipaflota félagsins. Þessi gámaskip eru þau stærstu sem þjónað hafa Norður-Atlantshafi í reglulegum áætlanasiglingum og fyrirhugaðar stækkanir á höfnunum í Nuuk á Grænlandi, Reykjavík og Þórshöfn í Færeyjum munu gera þessum skipum kleift að þjóna þessum markaði.”

Um Eimskip

Eimskip er leiðandi flutningafyrirtæki á Norður-Atlantshafi með tengingar við alþjóðlega markaði og sérhæfingu í flutningsmiðlun um allan heim, með þá framtíðarsýn að vera framúrskarandi í flutningalausnum og þjónustu.

Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland. Félagið rekur 61 starfsstöð í 20 löndum, er með 21 skip í rekstri og hefur á að skipa um 1.700 starfsmönnum.