Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmdastjóri Plain Vanilla, sagði í viðtali við VB Sjónvarp að starfsmenn Plain Vanilla hafi tekið Twilight maraþon og horft á allar myndirnar áður en leikurinn var gerður. Þeir hafi sjálfir gerst nokkurs konar vampírur því þeir hafi þurft að vaka mikið við vinnu á leiknum. Um leið og leikurinn var kynntur á Facebook-síðu Twilight fékk tölvuleikjafyrirtækið 150.000 „like“.