„Ég er alveg klár á því að þetta verður ekki auðsótt mál. Ég hélt að fleiri myndu koma í þetta mál en ég einn. En það virðist ekki vera að fleiri hafi kjark til þess,“ segir Valdimar H. Jóhannesson . Hann varð þjóðþekktur fyrir hátt í tuttugu árum fyrir baráttu sína gegn kvótkerfinu. Hann á nú í baráttu gegn slitastjórn Glitnis, sem hann hefur stefnt fyrir dóm. Markmiðið er að endurheimta tugi milljóna sem hann segir stjórnendur Glitnis hafa platað sig til að setja í eignastýringu fyrir hrun. Hann segir þetta m.a. snúast um það að fyrrverandi stjórnendur Glitnis verði gerðir ábyrgir fyrir störfum sínum.

Aðalmeðferð í málinu er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur á kvennafrídaginn 19. júní næstkomandi.

Vill sjá fleiri reyna að sækja fé sitt

Valdimar segir í samtali við vb.is að hann hafi átt 65 milljónir króna hjá Glitni eftir að hafa selt stóra eign. Starfsmaður bankans hafi snemma sumars árið 2007 haft samband til að fá sig í frekari viðskipti. Hann hafi gegn vilja sínum verið fenginn til að setja fjármunina í eignastýringu hjá bankanum en þeir orðið að litlu.

„Þetta verður ekki auðsótt mál því allt réttlætið er mín megin, finnst mér. Ég var plataður í viðskipti en þarna brann eftirlaunasjóður minn upp að miklu leyti,“ segir Valdimar sem hafði áður búist við því að fleiri sem höfðu lagt fjármuni í eignastýringu hjá bankanum en tapað fénu reynið að endurheimta það.