Snyrtivörufyrirtækið Coty tilkynnti nýverið að það hyggðist ráða fyrrverandi framkvæmdastjóra L´Oreal, Sue Y. Nabi, sem nýjan framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Frá þessu er greint á vef MarketWatch .

Nabi er meðal annars stofnandi hinnar þekktu lúxus húðvörulínu L´Oreal sem ber heitið Orveda og fyrrum framkvæmdastjóri L´Oreal auglýsingarinnar Lancome. Coty hyggst gera núverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins Peter Harf að stjórnarformanni fyrirtækisins.

Á þessu ári hafa hlutabréf Coty lækkað um 62% meðan S&P vísitalan hefur lækkað um 3,6%.