Við kaup HB Granda á sölufélögum í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur (sem áður hét Brim), félags Guðmundar Kristjánssonar forstjóra fyrirtækisins, mun eignarhlutur hans í gegnum ÚR í HB Granda hækka í 41,3%. Eykst hlutafé HB Granda um 7,3% en ÚR og tengdir aðilar munu eiga samtals 42,4% af virku hlutafé eftir kaupin.
Þetta kemur fram í kynningu fyrir boðaðan hluthafafund HB Granda 15. ágúst næstkomandi en kaupverð sölufélaganna fjögurra er þar sagt nema samanlagt 34,9 milljónum Bandaríkjadala. Samsvarar það 4,3 milljörðum króna á núverandi gengi, en kaupverðið er greitt með útgáfu 133.751.606 hluta, sem þegar þetta er skrifað eru verðmetnir á 4,6 milljarða króna.
Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um er um að ræða sölufélög í Japan, Hong Kong og á meginlandi Kína, ásamt þjónustufélagi á Íslandi tengdu þeim. Eru þessi sölufélög með allt að 30 ára sögu á mörkuðunum og seldu þau 38.100 tonn af sjávarafurðum á síðasta ári fyrir alls 167 milljónir dala, eða sem samsvarar 20,6 milljarða króna.
Um er að ræða félögin Seafood Services, sem er þjónustufélagið á Íslandi, Icelandic sem selur til Japans, Icelandic Hong Kong og Icelandic China. Keypti ÚR (þá Brim) félögin árið 2016 af Icelandic Group, sem var stýrt af Framtakssjóði Íslands, og hefur sala félagsins aukist síðan um 85% og tekjurnar aukist um 68% og EBITDA félaganna sjöfaldast.
Einnig hefur verið rætt um þá tillögu sem liggur fyrir fundinum að HB Grandi breyti um nafn og taki upp nafn Brims , félagsins sem Guðmundur Kristjánsson keypti í HB Granda í gegnum, en hefur síðan breytt um nafn. Sagði Viðskiptablaðið fyrst frá því á sínum tíma þegar Guðmundur keypti þriðjungshlut í HB Granda af félögum tengdum Kristjáni Loftssyni fyrir um 22 milljarða króna.
Fleiri fréttir um málefni HB Granda og Brim:
- 24. júlí 2019 - HB Grandi verður Brim 15. ágúst
- 18. júlí 2019 - Vilja að HB Grandi verði Brim
- 12. júlí 2019 - HB Grandi semur við ÚR
- 9. júlí 2019 - HB Grandi kaupi sölufélög Brim erlendis
- 3. júní 2019 - HB Grandi selur Engey til Rússlands
- 31. maí 2019 - Jónas hættir hjá HB Granda
- 29. maí 2019 - Afkoma HB Granda „ekki viðunandi“
- 19. apríl 2019 - Krúnuleikar í Kauphöllinni
- 18. apríl 2019 - Baráttan um þorskinn
- 7. apríl 2019 - Hvers virði er HB Grandi?
- 27. mars 2019 - ÚR efins um tilnefningarnefnd
- 26. mars 2019 - Kristján Þ. nýr í stjórn HB Granda
- 27. febrúar 2019 - Högnuðust á eignasölu dótturfélags
- 28. desember 2018 - Samkeppnieftirlitið barnið á heimilinu
- 27. desember 2018 - Minni hagnaður í sjávarútvegi
- 3. desember 2018 - Kaupir fyrir 340 milljónir í HB Granda
- 28. nóvember 2018 - Tekjur drógust saman um 20%
- 3. nóvember 2018 - Samþykkja kaupin á Ögurvík
- 2. nóvember 2018 - ÚR kaupir í Iceland Seafood
- 31. október 2018 - Kaupverðið lægra en markaðsvirði eignanna
- 30. október 2018 - Ellefu sagt upp hjá HB Granda
- 17. október 2018 - Nýtt mat vegna kaupanna á Ögurvík
- 16. október 2018 - Segja tillögu Gildis ótæka
- 11. október 2018 - HB Grandi frestar stjórnarfundi
- 9. október 2018 - Ræða tillögu ÚR á fimmtudaginn
- 9. október 2018 - Vilja ekki knýja viðskiptin í gegn
- 8. október 2018 - „Braskið er allt í kringum okkur"
- 8. október 2018 - Vilja fresta kaupum Granda á Ögurvík
- 19. september 2018 - Skýtur á stjórnarformann Fréttablaðsins
- 19. september 2018 - Frummatið kann að taka breytingum
- 19. september 2018 - Hugsanlega sekur um „alvarleg brot“
- 14. september 2018 - Brim verður Útgerðarfélag Reykjavíkur
- 13. september 2018 - Ægir Páll ráðinn framkvæmdastjóri HB Granda
- 13. september 2018 - Stjórn Granda samþykkir kaupin á Ögurvík
- 7. september 2018 - HB Grandi kaupir Ögurvík af Brimi
- 31. ágúst 2018 - Brynjólfur lætur af störfum hjá HB Granda
- 30. ágúst 2018 - Segir 30 milljóna tap Granda óviðunandi
- 9. ágúst 2018 - Meta HB Granda 27% undir markaðsvirði
- 25. júlí 2018 - Sjálfkjörið í stjórn HB Granda
- 9. júlí 2018 - „Nógu mikil vinna að vera forstjóri"
- 9. júlí 2018 - Guðmundur segir sig úr stjórn HB Granda
- 7. júlí 2018 - SE skoðar tengsl HB Granda og Brims
- 6. júlí 2018 - Tveir nýir í stjórn HB Granda
- 30. júní 2018 - 222 hluthafar tóku yfirtökutilboðinu
- 29. júní 2018 - Vilhjálmur tjáir sig ekki
- 29. júní 2018 - „Ákvörðunin kom mér á óvart“
- 29. júní 2018 - Efast um lögmæti uppsagnarinnar
- 28. júní 2018 - Enginn í stjórn í stað Rannveigar
- 28. júní 2018 - Festa seldi allan hlut sinn í HB Granda
- 28. júní 2018 - Minnihlutinn vildi ekki Guðmund
- 27. júní 2018 - Rannveig Rist segir sig úr stjórn Granda
- 25. júní 2018 - Segir Brim hafa farið á 200 milljónir
- 25. júní 2018 - Samþykktu báðar tillögurnar
- 21. júní 2018 - 90% hluthafa í Granda ætla ekki að selja
- 21. júní 2018 - Guðmundur verður forstjóri HB Granda
- 19. júní 2018 - Breytingar á framkvæmdastjórn HB Granda
- 31. maí 2018 - Borgar 426 milljónir í skatt
- 31. maí 2018 - Hagnaður Hvals helmingast
- 30. maí 2018 - Hagnaður Granda minnkar um 13%
- 30. maí 2018 - Lán Brims nálgast lögboðið hámark
- 28. maí 2018 - Tilboð Brim í Granda nemur 34,3 krónum
- 5. maí 2018 - Guðmundur, Magnús og Eggert í stjórn Granda
- 4. maí 2018 - Brim búið að borga milljarðana
- 1. maí 2018 - Sjö bjóða sig fram í stjórn Granda
- 26. apríl 2018 - Hvalvinir krefjast enn sniðgöngu Granda
- 21. apríl 2018 - Grandi rauk upp
- 20. apríl 2018 - 20% alls kvóta í fyrirtækjum Brims
- 20. apríl 2018 - Kaupin mynda yfirtökuskyldu á HB Granda
- 18. apríl 2018 - Selur í Granda fyrir 21,7 milljarð
- 2. mars 2018 - HB Grandi heldur áfram að lækka
- 1. mars 2018 - HB Grandi lækkar um 6,6%
- 28. febrúar 2018 - HB Grandi hagnast um 3 milljarða
- 7. maí 2016 - Selja núverandi höfuðstöðvar Brims