Áhersla verður á aðkomu hins opinbera að skipulagi og fjármögnun í ferðaþjónustu skuli vera gegnsæi, langtímahugsun, heildstæð nálgun, sjálfbærni og mælanlegur árangur.

Þetta kemur fram í tillögum nefndar sem iðnaðarráðherra skipaði um miðjan febrúar 2008 til að fjalla um skipulag og fjármögnun ferðaþjónustu.

Í fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu segir að tillögurnar séu  mikilvægur þáttur í endurskoðun á ferðamálaáætlun og framtíðarskipan málaflokksins eftir flutning hans til iðnaðarráðuneytis.

Einnig koma fram tillögur t.d. um að Ferðamálastofa verði efld sem opin og greiðfær gátt fyrir aðkomu hins opinbera að ferðaþjónustu, samstarf stofnana sem fjalla um ferðamál verði aukið og meginferðamannastöðum (seglum) verði fjölgað. Í niðurstöðum nefndarinnar kemur einnig fram að ferðaþjónustan líði fyrir núverandi fyrirkomulag í fjárfestingu hins opinbera í ferðaþjónustu sem einkennist af „skammtímahugsun og sveiflukenndum fjárfestingum".

Í fréttatilkynningu iðnaðarráðuneytissins segir að formaður nefndarinnar hafi verið Svanhildur Konráðsdóttir, formaður ferðamálaráðs og sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Aðrir í nefndinni voru alþingismennirnir Árni Páll Árnason og Ólöf Nordal, Adolf H. Berndsen, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðvesturlandi, Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, Jón Karl Ólafsson, fyrrv. formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, Sigríður Á. Snævarr sendiherra og Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda.