Samkvæmt upplýsingum frá WTO er áætlað að 460 milljón manns hafi verið á ferðalögum milli landa fyrstu 7 mánuði ársins sem er 5.9% aukning frá fyrra ári. Á sama tíma var 0.9% fækkun erlendra ferðamanna á Íslandi segir í fréttabréfi Samtaka ferðaþjónustunnar.
Með þeirri fjölgun sem varð í ágúst og september hér á landi er 1% aukning fyrstu 9 mánuði ársins.