Vegna ófriðarástands í Georgíu ráðleggur utanríkisráðuneytið Íslendingum eindregið frá því að ferðast til landsins.

Ráðuneytið óskar jafnframt eftir upplýsingum um þá Íslendinga sem kunna að vera í landinu.

Þeir sem staddir eru í Georgíu eða vita um Íslendinga í landinu geta haft samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 allan sólarhringinn og mun utanríkisráðuneytið áfram fylgjast grannt með stöðu mála í Georgíu.

Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins.