„Þetta er alvarleg staða fyrir íslenska ferðaþjónustu á sama tíma og rekstrarumhverfi fyrirtækjanna hefur stórversnað vegna olíuverðshækkana, skattahækkana og erfiðs efnahagsástands," segir í fréttatilkynningu frá Samtökum ferðþjónustunnar, sem Árni Gunnarsson formaður SAF og Erna Hauksdóttir framkvæmdastjóri skrifa undir.

„Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra sem raskar flugstarfsemi, bæði innanlands sem utan með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.  Ferðaþjónustan er mjög viðkvæm fyrir slíkum truflunum og eru þær slæmar fyrir ímynd og orðspor Íslands sem ferðamannalands.  Ferðamenn forðast almennt svæði þar sem búist er við verkföllum og vinnustöðvunum," segir í tilkynningunni.

Hvetja samtökin samningsaðila til að gera sitt ítrasta til að ná samningum áður en í óefni er komið.