Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að því að eigi síðar en15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í tveggja vikna sóttkví. Ákvörðunin gildir um ferðamenn frá löndum bæði innan og utan Schengen samstarfs Evrópuþjóða.

Jafnframt verði bæði Færeyjar og Grænland tekin af lista yfir hááhættusvæði, sem og gerð verði hagræn greining á áhrifum sjúkdómsins og aðgerðum til að opna landið að því er fram kemur í máli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á blaðamannafundi um afléttingu ferðatakmarkana sem nú stendur yfir.

Þá er gert ráð fyrir að nýleg vottorð um sýnatöku erlendis verði einnig tekin til greina meti sóttvarnalæknir þau áreiðanleg. Þessi tímasetning er með fyrirvara um að áætlanir um afléttingu takmarkana innanlands gangi eftir og með hliðsjón af þróun faraldursins hérlendis og erlendis.

Fyrirhugað er að veirufræðideild Landspítala Háskólasjúkrahúss annist sýnatöku á Keflavíkurflugvelli og greiningu. Niðurstaða á að geta legið fyrir samdægurs og er gert ráð fyrir að farþegar geti farið til síns heima eða á gististað uns hún liggur fyrir.

Fyrirkomulagið verður endurmetið þegar tveggja vikna reynsla er komin á það, m.a. út frá því hvort herða þurfi aftur aðgerðir eða hvort frekari tilslakanir séu forsvaranlegar. Ef skimun á Keflavíkurflugvelli reynist vel þarf einnig að huga að fyrirkomulagi á öðrum landamærastöðvum.