Landeigendur hverasvæðisins við Geysi í Haukadal ætla að hefja gjaldtöku af ferðamönnum 10. mars næstkomandi. Þeir sem eru 17 ára og eldri þurfa að greiða 600 krónur fyrir að skoða svæðið. Börn og unglingar sem ekki eru orðnir 17 fá ókeypis. Fram kemur í tilkynningu að heimsóknargjaldið rennur til verndar og uppbyggingar á Geysissvæðinu enda hafi það látið verulega á sjá á undanförnum árum. Þá er gjaldinu ætlað að standa straum að aukinni upplýsingagjöf til ferðamanna, kröfum um meiri þjónustu við gesti svæðisins og til að bæta öryggi þeirra frá því sem nú er.

Fram kemur í tilkynningu frá landeigendum hverasvæðisins að það er einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Þegar mest láti fari fjöldi gesta upp í 6.000 á degi hverjum. Miðað við það má ætla að ferðamenn sem komi að skoða hverasvæðið við Geysi greiði 3,6 milljónir króna á degi hverjum þegar mest lætur.

8-13 störf verða til við uppbyggingu og verndun

Því fari fjarri að uppbygging á svæðinu hafi haldist í hendur við fjölgun ferðamanna á síðustu árum. Að óbreyttu þoli svæðið ekki þennan gríðarlega fjölda gesta og nú sé svo komið að vinsælir og viðkvæmir hlutar svæðisins liggja undir skemmdum. Þá segir jafnframt í tilkynningunni að eigendur svæðisins hafi í áranna rás borið mikinn kostnað af svæðinu án þess að nokkrar tekjur hafi komið á móti til að sinna nauðsynlegu viðhaldi og uppbyggingu á hverasvæðinu. Landeigendur beri ábyrgð á varðveislu svæðisins. Þeim beri að vernda þessa náttúruperlu og tryggja um leið að svæðið verði áfram aðgengilegt og öryggi ferðamanna tryggt eins og kostur er.

Vinna við öryggisáætlun svæðisins og forgangsröðun verkefna vegna verndunar og uppbyggingar er þegar hafin. Gert er ráð fyrir því að 8 til 13 störf skapist við rekstur hverasvæðisins í nýrri og breyttri mynd, auk fjölda starfa meðan á nauðsynlegri uppbyggingu stendur, að því er segir í tilkynningunni.