Erlendir gestir hafa aldrei verið jafn margir í janúar og nú síðast, frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð. Um 22 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði. Það er um 3.500 fleiri en á árinu 2010, eða fjölgun 18,5%.

„Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá fjölgun frá þeim öllum. Um þúsund fleiri Norðurlandabúar fóru frá landinu í janúar en í sama mánuði árið 2010 og sama má segja um N.-Ameríkana og gesti frá Mið- og S-Evrópu. Þúsund fleiri gestir frá hvoru markaðasvæði fyrir sig fóru um Leifsstöð í janúarmánuði í ár,“ segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

Fleiri Íslendingar fara utan
Umtalsvert fleiri Íslendingar fóru utan í janúar í ár en í fyrra, 22.700 fóru utan í ár, tæplega þrjú þúsund fleiri en árinu áður þegar tæplega 20 þúsund Íslendingar fóru utan. Aukningin nemur 14,2% á milli ára.

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð.“