Dæmi eru um að ferðamenn reyni að svindla sér inn í Danmörku að því er greint á vef Túrista .

Í byrjun síðustu viku opnuðu dönsk stjórnvöld landamærin fyrir Þjóðverjum, Norðmönnum og Íslendingum. Þó er gerð sú krafa að ferðafólk framvísi bókun á gistingu í alla vega sex nætur við komuna geri þeir það ekki fá ferðamennirnir ekki inngöngu inn í landið.

Fljótlega eftir opnun fóru danskir hóteleigendur hins vegar að taka eftir því að þó nokkuð var um afbókanir á sex nátta gistingum.

Þá sérstaklega í þeim tilfellum þar sem staðfesting hafði verið gefin út líkt og fjallað er um í JyskeVestkysten. Þar lýsir jóskur hótelstjóri því til að mynda hversu einfalt það er fyrir fólk að afbóka gistingu eða komast hjá því að greiða fyrir pantanir. Eftir sitja þá hóteleigendur með tóm herbergi á meðan meintir gestir spóka sig um í Danmörku.