Um 272 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í júlí síðastliðnum samkvæmt talningu Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Eru þetta 35 þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra og nemur aukningin 15,2% á milli ára.

Er hlutfallsleg aukning svipuð á milli ára og í maímánuði, þegar hún mældist 17,5% og í júnímánuði þegar aukningin nam 18,9%. Aukningin er þó mun minni en í janúar (75,3%), febrúar (47,3%), mars (44,9%) og apríl (61,9%).

Frá áramótum hafa um 1,2 milljónir komið til landsins sem er um þriðjungs aukning frá sama tíma árið 2016.

Bandaríkjamenn tæpur þriðjungur

Bandaríkjamenn voru um 29% af þeim ferðamönnum sem komu til landsins í júlí eða um 33% fleiri en í júlí í fyrra. Þjóðverjar voru næstfjölmennastir, um 25 þúsund talsins eða álíka margir og í júlí árið 2016 og á eftir fylgdu Bretar, um 16 þúsund eða 9% færri en í júlí árið 2016. Þar á eftir fylgdu síðan Frakkar (5,6% af heild), Kanadamenn (5,1%), Kínverjar (3,5%), Danir (3,2%), Svíar (3,2%), Pólverjar (3,2%), Spánverjar (3,0%), Norðmenn (2,4%) og Svisslendingar (2,4%).