Í Herning, Danmörku safnaðist saman á dögunum fólk úr matvælaiðnaðinum víða að úr heiminum og keppti með vörur sínar á matvælahátíðinni International Food Contest. Hlaut Ísey skyr aðalverðlaunin í skyrflokki í ár að því er segir í fréttatilkynningu frá MS.

Ísey skyr markaðssett í Finnlandi
Ísey skyr markaðssett í Finnlandi
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Skyrið, sem er með lagi af ferskju í botninum, er þróað af vöruþróunarteymi Mjólkursamsölunnar og framleitt fyrir MS á Finnlandsmarkað af danska fyrirtækinu Thise, Mejeriet Dybbækdal.

Skyrið er með séríslenskum skyrkúltúrum. Sagði dómnefndin að skyrið hefði „Just hit the spot.“. (Judge Notes : Great texture. Balance between fruit and acid in the shells. Just hit the spot). Mjólkursamsalan fékk einnig heiðursverðlaun fyrir súkkulaðimjólk í flokki mjólkur og kakódrykkja auk fjórtán annara verðlauna fyrir góðar mjólkurvörur.

Heildarlisti yfir verðlaun Mjólkursamsölunnar á matvælasýningunni er þessi:

  • Heiðursverðlaun í flokki mjólkur og kakódrykkja – Súkkulaðimjólk 500ml frá Mjólkursamsölunni
  • Gull - Ísey Skyr Vanilla        170 gr
  • Gull - Ísey Skyr bökuð epli    170 gr
  • Silfur - Ísey skyr Naturel         1000 gr
  • Silfur - Ísey Skyr creme brulee           500 gr
  • Silfur - Ísey próteindr. suðrænir ávextir        300 ml
  • Silfur - Grísk jógúrt Naturel   1000 gr
  • Silfur - Óska Jógúrt með melónukokteil                     180 gr
  • Silfur - Óska Jógúrt með kaffibragði  180 gr
  • Silfur - LGG jarðaberja                      65 ml
  • Silfur - Hleðsla Íþróttadrykkur súkkulaðibragð        330 ml
  • Brons - Laktósa frí mjólk 1,5% fita     1000 ml
  • Brons - Laktósa frí Súrmjólk   1000 ml
  • Brons - Ísey Skyr bláber                      170 gr
  • Brons - Drykkjarjógúrt með Jarðaberjum      300 ml