Festi hagnaðist um tæplega 2,5 milljarða króna á síðasta ári og dróst hagnaðurinn saman frá fyrra ári er hann nam ríflega 2,8 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu 86,3 milljörðum króna, samanborði við 85 milljarða árið áður. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins fyrir árið 2020 .

Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 20,7 milljörðum króna á síðasta ári, en árið áður nam framlegð 20,2 milljörðum króna. Framlegð af vörusölu á árinu var 24% samanborið við 23,8% árið 2019. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og matsbreytingar (EBITDA) nam tæplega 7,1 milljarði króna og dróst saman um ríflega hálfan milljarð frá árinu áður.

Eignir félagsins námu 83,4 milljörðum króna í árslok 2020 og eigið fé 29,8 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall var því 35,7% samanborið við 35,3% í lok árs 2019.

Kostnaður vegna COVID-19 var 394 milljónir króna á árinu 2020. Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindingar var 29.986 milljónir króna í lok 2020 samanborið við 28.011 milljónir króna í lok 2019.

Gekk vel þrátt fyrir krefjandi aðstæður

„Rekstur Festi samstæðunnar á árinu 2020 gekk vel þrátt fyrir mjög krefjandi aðstæður þar sem samkomubönn og sóttvarnarráðstafanir höfðu mikil áhrif á öll dótturfélögin. N1 fann mikið fyrir minni umferð og algjöru hruni í ferðaþjónustunni en þá kom sér vel að þjónustusvæði félagsins er sterkt um allt land og í öllum atvinnugreinum. Kappkostað var að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum og enn eitt árið jukust umsvif bílaþjónustu félagsins. ELKO átti sitt besta ár frá upphafi þrátt fyrir að næststærsta verslun félagsins í Leifsstöð væri nánast lokuð í 10 mánuði árið 2020. Þessa velgengni má meðal annars þakka sterkum innviðum vefverslunar ELKO. Festi er einnig stór hluthafi í Dropp sem er í samstarfi við ELKO um afhendingu á vörum á sautján N1 þjónustustöðvum um landið og hefur það hjálpað okkur að tryggja betri þjónustu fyrir viðskiptavini í COVID19 faraldrinum. Umsvif Krónunnar jukust á árinu og var velta félagsins sú mesta frá upphafi. Þar kom einnig Snjallverslun Krónunnar til sögunnar sem er snjallforrit sem viðskiptavinir geta nýtt sér vilji þeir gera innkaupin á netinu og fá sent heim. Krónan opnaði þrjár nýjar verslanir á árinu, ELKO og N1 opnuðu nýjar verslanir á Akureyri sem hafa allar hlotið góðar viðtökur.

Á heildina litið gekk reksturinn vel við þessar aðstæður og á starfsfólk okkar heiður skilinn fyrir framúrskarandi vinnu við að þjónusta viðskiptavini okkar. Það er gæfa Festi að eiga sterk vörumerki sem eru öll leiðtogar á sínum mörkuðum. Við sjáum ennþá mikil tækifæri í samstæðunni til framtíðar með nýtingu á tækni og lausnum sem auðvelda líf okkar viðskiptavina.

Horfur í rekstri Festi samstæðunnar eru góðar og félagið er vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan. Umhverfismál eru stór hluti af okkar starfsemi og munum við áfram leggja mikla áherslu á gæði og öryggismál til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina,“  er haft eftir Eggerti Þór Kristóferssyni, forstjóra Festi, í uppgjörstilkynningu félagsins .