Franska kvikmyndahátíðin, eða FFF 2014, hefst á morgun og stendur til 30. janúar næstkomandi í Háskólabíó. Þetta er í fjórtánda sinn sem hátíðin er haldin. Hún verður með fjölbreyttu sniði að vanda en 9 myndir verða á dagskrá. Opnunarmyndin heitir Eyjafjallajökull.

Gamanmyndir eru áberandi þetta árið en einnig má finna teiknimyndir fyrir alla fjölskylduna, drama og spennu. Við bíðum með eftirvæntingu eftir opnun hátíðarinnar.

Hér eru frekari upplýsingar um hátíðina .