Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Íslands (FFSÍ) telur að með kaupum Framtakssjóðs á Vestia, af Landsbankanum, hafi stjórn sjóðsins farið  langt út fyrir þann ramma sem lagður var til grundvallar þegar hlutverk sjóðsins var kynnt fyrir  stjórnum þeirra Lífeyrissjóða sem gert er ráð fyrir að standa muni að fjármögnun Framtakssjóðsins.

Stjórn FFSÍ  telur að byrjað hafi verið á öfugum enda, þar sem  ekki hafi á nokkurn máta  verið sýnt fram á að kröfu um ávöxtun  sé fullnægt.  Stjórnin leggur áherslu á  að nú þegar sé meira en nóg  komið af áhættufjárfestingum hjá  lífeyrissjóðum íslensks launafólks.