Fasteignafélagið Á1 hefur samþykkt tilboð FÍ fasteignafélags slhf í fasteign sína að Ármúla 1. Þar er fjármálafyrirtækið Lýsing meðal annars til húsa. Tilboðið er samþykkt með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki stjórnar FÍ fasteignafélags slhf.

FÍ fasteignafélag slhf er ungt félag sem hefur það að markmiði að fjárfesta í vel staðsettu atvinnuhúsnæði sem fellur að fjárfestingarstefnu félagsins. Félagið á meðal annars gamla DV húsið í Þverholti, Bernhöftstorfuna í miðborg Reykjavíkur og húsnæðið í Glæsibæ.