Skrifað hefur verið undir kaupsamning um kaup FÍ fasteignafélags slhf. á Ármúla 1 í Reykjavík en seljandi fasteignarinnar er Á1 ehf. Kemur þetta fram í tilkynningu frá fasteignafélaginu.

Í tilkynningunni er haft eftir Erni V. Kjartanssyni, framkvæmdastjóra félagsins að kaupin auki nokkuð við magn skrifstofufermetra í fasteignasafni félagsins. Leigutakarí Ármúla 1 eru Lýsing og Pixel prentþjónusta. „Múlasvæðið hefur verið að styrkjast verulega sem miðlæg staðsetning fyrir fyrirtæki sem vilja gera viðskiptavinum auðvelt um vik að sækja til þeirra þjónustu,“ segir Örn í tilkynningunni.