FÍ fasteignafélag slhf hefur undirritað samning um kaup á fasteigninni Þverholti 11 í 105 Reykjavík. Húsið hýsir núna Listaháskóla Íslands en hýsti einu sinni skrifstofur DV. Seljandi er eignarhaldsfélagið Þ11. Með kaupum  FÍ á fasteigninni aukast leigutekjur og EBITDA félagsins yfir 40% á ársgrundvelli.

FÍ fasteignafélag slhf er fasteignafélag að mestu í eigu lífeyrissjóða og með fjárfestingarstefnu sem hefur að markmiði að fjárfesta í vel staðsettu atvinnuhúsnæði með trausta leigutaka.