Fimm bílar seldust í síðustu viku samkvæmt söluskýrslu Bílgreinasambandsins. Það sem af er mánuðinum hafa selst 18 bílar sem er tæplega 98% samdráttur.

Einn Audi-bíll seldist, einn frá Mitshubishi, einn frá Suzuki, einn frá GM og einn Skodi. Heildarsamdráttur á milli ára nemur nú 43,5%.