Fimm fjárfestahópar eru eftir í söluferli á Tryggingamiðstöðinni (TM). Frestur þeirra til þess að skila inn skuldbindandi tilboðum rennur út síðar í þessum mánuði. Hallbjörn Karlsson fjárfestir vildi ekki gefa það upp hvort fjár­festahópur sem hann og Árni Hauksson tilheyrðu séu meðal þeirra sem eftir eru í ferlinu.

Viðskiptablaðið greindi frá því fyrir skömmu að þeir Hallbjörn og Árni gerðu tilboð ásamt öðrum fjárfest­ um í tryggingafélagið, en alls skiluðu tíu hópar óskuldbindandi tilboðum.

Íslandssjóðir leiða einn þeirra hópa sem eftir standa en Guðmundur Örn Gunnarsson, fyrrum forstjóri VÍS, hefur verið honum til ráðgjafar.

Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson
Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson
© BIG (VB MYND/BIG)