Fimm aðilar tilkynntu um þátttöku í forvali til útboðs um kaup á útlánasafni og yfirtöku á skuldum Lánasjóðs landbúnaðarins, en skilafrestur erinda rann út 5. ágúst s.l. Þrjú erindanna, frá Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf. og Íslandsbanka hf. uppfylltu öll skilyrði og hefur bönkunum verið boðin áframhaldandi þátttaka í söluferlinu. Samband íslenskra sparisjóða, f.h. sparisjóðanna á Íslandi, og Sparisjóðabankinn, og MP Fjárfestingarbanki uppfylltu ekki öll skilyrðin og hefur því verið synjað um frekari þátttöku.

Skilyrði til þátttöku voru meðal annars þau að tilboðsgjafi skal yfirtaka skuldbindingar Lánasjóðsins sem eru í langflestum tilfellum með ríkisábyrgð.

Einnig skal tilboðsgjafi hafa trausta fjárhagsstöðu og alþjóðlegt lánshæfismat. Tilboðsgjafi skal vera fjármálafyrirtæki í skilningi 4. gr., 1.-3. tl. laga nr. 161/2002. Þá skal tilboðsgjafi fallast á það skilyrði að standa við lánsloforð sem stjórn Lánasjóðsins hefur þegar veitt að uppfylltum skilyrðum.

Einnig skal tilboðsgjafi lýsa því yfir með því að leggja inn tilboð um kaup á umræddum skuldabréfum, að hann muni ekki hækka vexti né breyta kjörum skuldabréfanna til hins verra fyrir skuldara, umfram það sem stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins hefur samþykkt við yfirtöku lána.

Tilboðsgjafi skal lýsa því yfir að ákvæði skuldabréfanna um uppgreiðsluheimild skuldara haldist. Sömuleiðis skal tilboðsgjafi lýsa því yfir að hann muni kappkosta að veita landbúnaðinum öllum fjármálaþjónustu á viðskiptalegum grundvelli.

Tilboðsgjafi skal lýsa því yfir að hann mun leggja sig fram um að starfsfólk Lánasjóðsins haldi störfum sínum eða fái sambærileg störf hjá tilboðsgjafa.