Vinnumálastofnun bárust 5 tilkynningar um hópuppsagnir í október 2010 þar sem 184 manns var sagt upp.

Tilkynningarnar voru frá fyrirtækjum í byggingariðnaði og fiskvinnslu á Vestfjörðum, fjarskiptagreinum og veitingaþjónustu á höfðuborgarsvæðinu og veitustarfsemi á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp munu missa vinnuna í desember 2010 og til apríl 2011.

Alls hafa Vinnumálastofnun borist tilkynningar frá 27 fyrirtækjum á árinu 2010 þar sem 699 manns hefur verið sagt upp.