Stjórn Össurar hf. verður óbreytt að loknum aðalfundi félagsins en aðeins fimm buðu sig fram til stjórnarsetu og er því sjálfkjörið í stjórn. Þau eru Arne Boye Nielsen, Kristján Tómas Ragnarsson, Niels Jacobsen, Svava Grönfeldt og Þórður Magnússon. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar. Þessi fimm hafa setið í stjórn frá síðasta aðalfundi en Niels Jacobsen er formaður stjórnar og Þórður Magnússon er varaformaður.

Aðalfundur Össurar fer fram á föstudag.