Fiskifréttir sögðu frá því 11. mars 2009 að ein milljón manna hefðu séð myndband með íslenska togaranum Smáey VE sem var á siglingu í stórsjó. Skipið virðist vera á leið til heimahafnar í Vestmannaeyjum.

Nú eru liðin tæp tvö ár frá frétt Fiskifrétta og nú hafa rúmar fimm milljónir manna séð myndbandið.