Fimm flugmenn Icelandair, sem ráðnir voru tímabundið í vor, fengu fastráðningu í gær. Alls voru 25 menn ráðnir sérstaklega vegna aukinna verkefna yfir sumarið og hætta 20 þeirra nú um mánaðamótin, en fimm halda áfram störfum. Þetta kemur fram í frétta á heimasíðu Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Þess má geta að í tengslum við nýtt flug Icelandair til San Francisco í maí 2005 er gert ráð fyrir að ráða í 80 til 100 nú störf. Gera má ráð fyrir að þar séu nokkrir flugmenn á meðal.