BL ehf. býst við því að fimm þusundir bílar af merkjum BL verði nýskráðir á árinu. Þetta segir í fréttatilkynningu frá BL.

„Alls voru 4.502 bílar af merkjum sem BL hefur umboð fyrir nýskráðir fyrstu níu mánuði ársins. Það er 60% aukning frá sama tímabili í fyrra þegar 2.806 bílar voru skráðir á tímabilinu,“ segir í tilkynningunni. Á fyrstu níu mánuðum ársins þá nam markaðshlutdeild fyrirtækisins 26,1%.

„Þegar litið er til söluhæstu einstakra bíltegunda hjá BL í september voru 78 Nissan bílar nýskráðir, 61 frá Hyundai og sami fjöldi af gerðinni Renault. Sem fyrr er Hyundai söluhæsta einstaka bíltegund BL ehf. með alls 1.267 nýskráða á árinu,“ segir einnig í tilkynningunni.