Fimm veitingastaðir af 97 sem skoðaðir voru brutu reglur um verðmerkingar þegar Neytendastofa kannaði málið í júlí. Skoðað var hvort matseðill með verðupplýsingum væri við inngöngudyr og  hvort magnupplýsingar drykkja kæmu fram.

Veitingahúsum ber að hafa matseðil með verði við inngöngudyr sínar svo neytendur geti kynnt sér vöruúrval og verð áður en þeim er vísað til borðs. Í flestum tilvikum var matseðill við inngang eða á 92 veitingastöðum af 97. Þeir fimm staðir sem ekki höfðu matseðil við inngang voru Kopar, Lebowski Bar, Sushi samba, Íslenska hamborgarafabrikkan og Grillhúsið.

„Erfitt getur verið að átta sig á verðinu ef magns er ekki getið.  Til þess að neytendur geti betur áttað sig á verðinu á að gefa upp magn á drykkjarföngum hvort sem það er í flösku eða glasi, auk verðs.  Á  14 veitingastöðum vantaði magnupplýsingar á verðskrá drykkja,“ segir í frétt á vef Neytendastofu.