Fimm flokkar sem sátu fyrir svörum Félags atvinnurekenda um landbúnaðar- og tollamál, sem haldinn var í morgun, vildu afnema undanþágu mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum. Hægt er að lesa um málið á vef Félags atvinnurekenda .

Framsóknarflokkurinn er hins vegar ekki með þetta mál á stefnuskrá sinni en frambjóðandi VG segist vilja skoða málið. Forsvarsmenn sjö flokka svöruðu spurningum FA og spurningum úr sal á fundinum.

„Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú, spurði frambjóðendur hvort þeir vildu afnema undanþágu mjólkuriðnaðarins frá samkeppnislögum. Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, Smári McCarthy, Pírötum, Árni Páll Árnason, Samfylkingu og Pawel Bartoszek, Viðreisn, svöruðu öll með skýru jáyrði; að þeirra flokkar vildu afnema undanþáguna. Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, tók í sama streng og sagði að það væri „algjört lykilatriði að þetta sé í skýru samkeppnisumhverfi.“ Guðlaugur sagðist jafnframt vilja sameina stofnanir sem sinntu samkeppnismálum; Samkeppnisstofnun, Póst- og fjarskiptastofnun og samkeppnishluta Orkustofnunar,“ segir í fréttinni.

Hins vegar þá sagði Þórunn Egilsdóttir frambjóðandi Framsóknarflokksins að flokkur hennar stefndi ekki að því að afnámi á undanþágunni. Hún taldi það mikilvægt að skoða í heildarsamhengi hvaða hagsmuni væri verið að verja. Kolbeinn Óttarsson Proppé, frambjóðandi VG, vildi kynna sér málið í þaula og taka svo skynsamlega afstöðu.