Sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir bjóða nú upp á rafræna auðkenningu undirskrifta en þessi aðferð leysir algerlega af hólmi hefðbundna undirritun með penna. Flestar undirritunarlausnirnar eru byggðar á hugbúnaðarlausninni Signet frá Advania sem síðan er hefur verið löguð að þörfum viðskiptavina segir í fréttatilkynningu frá Advania.

Almenningur hefur ótvírætt hagræði af notkun rafrænna undirskrifta segir jafnframt í tilkynningunni. Ekki þarf lengur að mæta á tiltekinn stað til að undirrita skjöl - oft á miðjum vinnudegi eða langt frá heimili sínu. Í dag er t.d. hægt að stofna bankareikning, senda umsóknir og undirrita fylgiskjöl lánasamninga án þess að fara í bankann, auk þess sem hægt er að sækja um leyfi til atvinnurekstrar hjá opinberri stofnun.

Allar þessar aðgerðir er í dag hægt að framkvæma í gegnum tölvu eða símtæki án þess að mæta á staðinn með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn. Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi segir tækniþróunina krefjast þess að ferlar séu endurhannaðir með tilliti til tækninnar og aukinnar þekkingar almennings á stafrænum möguleikum.

„Það er hins vegar mikilvægt að lagaumhverfið taki mið af þessari þróun. Með einföldum laga- og reglugerðarbreytingum mætti t.d. auðvelda fasteignaviðskipti til muna,“ segir Ægir Már.

„Í dag geta fasteignasalar ekki gengið frá viðskiptum með rafrænum hætti þar sem þinglýsingalög heimila ekki slíkt. Hér er um að ræða gömul lög sem tímabært er að uppfæra og skapa þannig skilvirkara umhverfi fyrir fólk sem vill þinglýsa skjölum með nútímalegum og öruggum hætti."