Íslensk stjórnvöld hafa sent Alþjóðagjaldeyrissjóðnum viljayfirlýsingu vegna fimmtu endurskoðunar efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við sjóðinn. Stefnt er að því að endurskoðun efnahagsáætlunarinnar verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins 3. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

„Sem fyrr verður yfirlýsingin birt opinberlega eftir að endurskoðunin hefur verið samþykkt. Í kjölfarið opnast fyrir aðgang að síðasta fjórðungi lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna auk frekari lána frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum," segir í tilkynningunni.