Hagnaður Landsvirkjunar árið 2016 nam 66,8 milljónum Bandaríkjadala eða 7,6 milljörðum íslenskra króna, en árið 2015 var hagnaður félagsins 84,2 milljónir dala.

Er því um ríflega fimmtungsminnkun hagnaðar að ræða á milli ára. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði dróst minna saman milli áranna, eða um 9,9%, en á síðasta ári nam hann 117,7 milljónum Bandaríkjadala.

Nemur það 13,3 milljörðum íslenskra króna, en árið 2015 nam hagnaðurinn fyrir óinnleysta fjármagnsliði 130,6 milljónum dala.

Rekstrartekjur lækkuðu um 1,1 milljón dali

Rekstrartekjur félagsins námu 420,4 milljónum Bandaríkjadala, eða 47,5 milljörðum íslenskra króna á árinu 2016. Er það lækkun um 1,1 milljón dali frá árinu 2015.

EBITDA Landsvirkjunar lækkar einnig milli ára, eða um 20 milljónir dala og var hún 301,7 milljónir dala, eða sem nemur 34,1 milljörðum króna.

Skuldir lækkuðu um 2,8 milljarða króna

Nettó skuldir félagsins lækkuðu um 2,8 milljarða íslenskra króna, eða 24,9 milljónir dala á síðasta ári en um áramótin stóðu þær í 1.960,5 milljónum dala, eða 221,5 milljörðum íslenskra króna.

Handbært fé frá rekstri lækkaði um 7,7% frá árinu 2015 á árinu og nam það 229,8 milljónum dala, eða sem samsvarar 26,0 milljörðum króna.

Ytri aðstæður ekki hagfelldar

„Afkoma Landsvirkjunar á árinu 2016 er vel ásættanleg, þótt hún dragist saman á  milli ára," er haft eftir Herði Arnarssyni, forstjóra fyrirtækisins í tilkynningu.

„Ytri aðstæður voru ekki hagfelldar á árinu 2016. Álverð var áfram lágt, þótt það hafi farið hækkandi á seinni hluta ársins. Enn eru tekjur okkar að nokkru leyti bundnar við álverð.

Minnkandi sala

Þá minnkaði selt magn milli ára þvert á áætlanir, vegna rekstrarvanda viðskiptavina. Þrátt fyrir þetta héldust tekjur nærri óbreyttar milli ára.

Sterkt sjóðsstreymi gerði meira en að standa undir framkvæmdum við nýja vatnsaflsvirkjun Búrfell II og jarðvarmavirkjun við Þeistareyki.

Það er ánægjulegt að geta unnið að þessari uppbyggingu og hækka ekki skuldir, heldur þvert á móti lækka þær.

Veruleg lækkun vaxtagjalda

Lækkun skulda á undanförnum árum er að skila sér í auknum mæli í rekstri fyrirtækisins en það sést á verulegri lækkun vaxtagjalda milli ára.

Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkaði um einn flokk í janúar 2017 og hefur fyrirtækið hækkað um þrjá flokka á síðustu árum.

Fyrirtækið er í fjárfestingarflokki án ríkisábyrgðar og nálgast nú sambærileg fyrirtæki í nágrannalöndunum að þessu leyti.“