Íslensk fyrirtæki fá um 6% af rekstrartekjum sínum af sölu í gegnum netið, það er af 68% í gegnum eigin vefsíður og 32% í gegnum almennar sölusíður. Um 430 af 2.023 fyrirtækjum sem tóku þátt í samevrópskri rannsókn, sem Hagstofa Íslands tók þátt í, um viðskipti fyrirtækja í gegnum netið, selja vörur þannig, eða 21% fyrirtækjanna.

Undanskilið frá heildarfjöldanum eru fyrirtæki með færri en 10 starfsmenn sem og fyrirtæki í fjármálastarfsemi, landbúnaði, fiskveiðum, skógrækt, eða úrvinnslu hráefna úr jörðu.

Í niðurstöðum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, fyrir Evrópusambandsríkin 28 árið áður (2018) er meðahlutfall fyrirtækja sem selja vörur eða þjónustu í gegnum vefsíður eða öpp 16%. Er hlutfallið hæst á Írlandi, eða 30%. Á Norðurlöndunum er hlutfallið 26% í Svíþjóð, 25% í Noregi og Danmörku, og 19% í Finlandi.

Árið 2018 greiddu 51% fyrirtækja (úr sömu rannsókn) fyrir auglýsingar á netinu. Hjá 73% þeirra var minna en þriðjungur af heildar birtingarkostnaði greiddur til erlendra aðila, hjá 14% fyrirtækja rann einn til tveir þriðjungar birtingarkostnaðar til erlendra aðila og hjá 13% fyrirtækja meira en tveir þriðjungar.