Um fimmtungur íbúa í Reykjanesbæ starfar á Keflavíkurflugvelli. Mikil aukning í þjónustu sem tengist flugi hefur skilað sér í fleiri störfum þar.

Samkvæmt könnun MMR, sem unnin var fyrir Atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar nú í október, starfa um 21,2% vinnandi íbúa á Keflavíkurflugvelli.  Þetta er gríðarlega jákvætt og mikilvægt fyrir okkur að eiga svo sterka stoð í flugþjónustunni, segir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnasviðs Reykjanesbæjar.

„Hún er grundvöllur margra tækifæra í ferðaþjónustu. Við finnum fyrir þessu í auknum fjölda ferðamanna sem sækja hingað inn í bæinn og það hefur þá margfeldisáhrif út fyrir flugvallarsvæðið, sem ekki eru í þessum tölum,“ segir Pétur Jóhannsson um flugþjónustuna.