Ríkisendurskoðun hvetur velferðarráðuneytið til að beita sér fyrir því að rekstrarvandi Lyfjastofnunar verði leystur og að komið verði til móts við stofnunina vegna kostnaðar sem hún ber af lögbundnum stjórnsýsluverkefnum. Þetta kemur fram í frétt á vef Ríkisendurskoðunar .

Þar er greint frá því að Ríkisendurskoðun hafi árið 2009 beint nokkrum ábendingum til Lyfjastofnunar og heilbrigðisyfirvalda sem tengdust fjárhag og starfsemi stofnunarinnar. Árið 2012 hafi hluti þessara ábendinga verið ítrekaður og settar fram tvær nýjar. Þar hafi velferðarráðuneytið og Lyfjastofnun verið hvött til að tryggja að rekstur stofnunarinnar væri jafnan í samræmi við fjárheimildir.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að Lyfjastofnun hefur verið rekin með afgangi frá árinu 2010. Fjárhagsstaða hennar hefur því styrkst talsvert á síðustu árum. Enn býr hún þó við uppsafnaðan halla fyrri ára.

Ríkisendurskoðun hefur því ítrekað tvær ábendingar sinna frá árinu 2012. Annars vegar er velferðarráðuneytið hvatt til að beita sér fyrir því að rekstrarvandi Lyfjastofnunar verði leystur til frambúðar. Þetta verði meðal annars gert með því að Alþingi heimili stofnuninni að nota bundið eigið fé sitt til að jafna uppsafnaðan rekstrarhalla sinn. Hins vegar beiti ráðuneytið sér fyrir því að Alþingi komi í fjárlögum til móts við Lyfjastofnun vegna lögbundinna stjórnsýsluverkefna hennar sem hún hefur ekki fengið greitt sérstaklega fyrir.