Stjórn Icelandic Group hf hefur ráðið Finnboga Baldvinsson sem forstjóra félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins.

Finnbogi Baldvinsson stundaði nám í sjávarútvegsfræðum við Háskólann í Tromsö í Noregi 1983 - 1988. Hann hefur allar götur síðan tengst framleiðslu og vinnslu sjávarafurða.

Finnbogi var framkvæmdastjóri þýska útgerðarfélagsins DFFU í Cuxhaven árin 1995 - 2000. Hann varð forstjóri Pickenpack Hussmann & Hahn þegar fyrirtækin sameinuðust árið 2003 og hann rak félagið til ársins 2006 þegar Pickenpack varð hluti af Icelandic Group. Finnbogi tók við starfi forstöðumanns Evrópusviðs Icelandic eða Icelandic Europe 2006. Hann hefur gegnt því starfi til þessa dags.

„Ég lít á þetta sem mjög krefjandi verkefni. Það er ljóst að framundan er tími hjá félaginu þar sem krafa hluthafa um árangur verður höfð að leiðarljósi. Félagið hefur gengið í gegnum mikið umbreytingatímabil og hagræðingu í rekstri og það er mitt hlutverk að sjá til þess að þau verk nýtist til fullnustu. Það er mikið af hæfu og góðu fólki hjá Icelandic sem ég hlakka til að vinna með. Það eru líka mikil tækifæri um þessar mundir fyrir fyrirtæki sem starfa í matvælaframleiðslu. Matur og heilsa er endalaust verkefni sem alltaf er í tísku,“ segir í yfirlýsingu frá Finnboga á heimasíðu Icelandic Group.