Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins samþykkti á fundi í gær að ráða Finnboga Jónsson, sem framkvæmdastjóra sjóðsins, segir í fréttatilkynningu.

Finnbogi er fæddur á Akureyri 18. janúar 1950 . Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá HÍ 1973, lokaprófi í eðlisverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1978 og lokaprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Lundi sama ár.

Finnbogi kenndi við Gagnfræða- og Iðnskóla Vestmannaeyja 1970-71, var deildarstjóri og sérfræðingur í iðnaðarráðuneytinu 1979-82, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1982-86 og forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað frá 1986-1999.

Hann var forstjóri Íslenskra sjávarafurða hf. 1999, starfandi stjórnarformaður Samherja hf. 2000 ? 2005 og framkvæmdastjóri SR-Mjöls h/f. frá 2003.

Alls bárust 40 umsóknir um starfið. Finnbogi Jónson mun taka til starfa hjá Nýsköpunarsjóði 15. september 2006.