Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Samherja, verður gestur Viðskiptaþáttar Viðskiptablaðsins á Útvarpi Sögu í dag. Aðalfundur Samherja var haldinn í síðustu viku en stjórn félagsins hefur ákveðið að kaupa allt hlutafé félagsins og afskrá það úr Kauphöllinni.

Í seinni hluta þáttarins verður rætt við Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðarsvæðisins, um stóriðjuáform í Eyjafirði.