Stjórn Framtakssjóðs Íslands hefur ráðið Finnboga Jónsson sem framkvæmdastjóra.

Þetta kemur fram á vef Landssamtaka lífeyrissjóða (LL) en Framtakssjóður Íslands var nýlega stofnaður af fjölmörgum lífeyrissjóðum. Lífeyrissjóðirnir leggja sjóðnum til 30 milljarða kr. og mun sjóðurinn gegna veigamiklu hlutverki í endurreisn íslensks efnahagslífs með fjárfestingum í fyrirtækjum að því er fram kemur á vef LL.

Finnbogi hefur mikla reynslu í íslensku atvinnulífi. Hann lauk prófum í eðlisverkfræði og rekstrarhagfræði frá háskólum í Svíþjóð og frá Háskóla Íslands auk náms í stjórnun og alþjóða viðskiptum í Frakklandi.

Finnbogi starfaði í iðnaðarráðuneytinu, var framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, var lengi forstjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað og var starfandi stjórnarformaður Samherja um árabil. Finnbogi var jafnframt framkvæmdastjóri SR-Mjöls og síðustu ár hefur hann verið framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Finnbogi hefur jafnframt setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og gegnt fjölda trúnaðarstarfa í atvinnulífinu.