Mikill áhugi er á morgunverðarfundi SA, FKA og Finnsk-íslenska viðskiptaráðsins í fyrramálið um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn. Eftir því sem komist verður næst hafa finnskir fjölmiðlar sýnt fundinum áhuga og munu fulltrúar einhverja finnskra fjölmiðla leggja leið sína hingað til lands til að fylgjast með fundinum.

Fundurinn fer fram á Hótel Sögu og hefur verið færður í Súlnasal vegna mikillar aðsóknar.