Finnur Ingólfsson mun láta af störfum sem forstjóri VÍS eignarhaldsfélags í kjölfar kaupa Exista en hann verður starfandi stjórnarformaður Vátryggingafélags Íslands.

Lýður Guðmundsson mun leiða stefnumörkun Exista sem starfandi stjórnarformaður. Lýður er jafnframt stjórnarformaður Bakkavör Group, en hann lét nýverið af störfum sem forstjóri þess félags.

Framkvæmdastjórn verður í höndum forstjóra félagsins, þeirra Erlendar Hjaltasonar og Sigurðar Valtýssonar. Aðalverksvið Erlendar Hjaltasonar er að stýra kjarnafjárfestingum og nýjum fjárfestingum samstæðunnar. Erlendur mun jafnframt annast ytri samskipti samstæðunnar og samskipti við hluthafa. Aðalverksvið Sigurðar Valtýssonar er stýring tryggingastarfsemi samstæðunnar, útlána- og áhættustýring, fjármögnun og stýring lausafjár.